Nýr samningur við SA samþykktur

Í dag kl. 12:00 lauk atkvæðagreiðslu um  nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Atkvæðagreiðslan fór fram inn á Mínum síðum félagsins.

Samningurinn var samþykktur með 83,93% greiddra atkvæða félagsmanna Einingar-Iðju. Kjarasamningurinn gildir því afturvirkt fyrir félagsmenn frá 1. nóvember sl. til 31. janúar 2024.

  • Á kjörskrá 3530. 921 Kusu  eða 26,09%
  • Já sögðu 773 eða 83,93%
  • Nei sögðu 93 eða 10,10%
  • Tóku ekki afstöðu 55 eða 5,97%