Nýr kjarasamningur við ríkið - kosning hefst kl. 15 í dag - Rafræn kynning mánudaginn 19. júní

Eins og fram kom í frétt hér á síðunni í gær var skrifað undir nýjan kjarasamning við ríkið í gær.

Rafræn atkvæðagreiðsla hefst strax kl. 15:00 í dag, föstudaginn 16. júní, og mun ljúka kl. 9:00 miðvikudaginn 21. júní nk.

Hér er upplýsingasíða um nýja samninginn þar sem má finna helstu atriði hans, nýja launatöflu og upplýsingar um atkvæðagreiðsluna sem verður rafræn.

Rafrænn kynning
Mánudaginn 19. júní nk. verða tveir rafrænir kynningafundir haldnir fyrir okkar félaga sem starfa hjá ríkinu. Fyrri fundurinn verður kl. 14:00 og sá seinni kl. 18:00. Alveg sama er á hvorn fundinn mætt er á.

Til að kanna þínar upplýsingar þá smellir þú á örina niður sem er efst á Mínum síðum, hægra megin við nafnið þitt. Þá birtist flipi og þar smellir þú á UPPLÝSINGAR. Þar sérðu og getur breytt upplýsingum um þig.