Á Mínum síðum félagsins mun verða hægt að fara inn í nýja vefverslun þar sem mun birtast listi yfir valmöguleika sem félagsfólki býðst að kaupa á hagstæðu verði.
Stefnt er á að vefverslun félagsins verði komin í loftið í mars 2025. Þar verður m.a. áfram hægt að versla Útilegukortið og Veiðikortið og jafnvel eitthvað fleira sem mun verða ljóst er hún fer í loftið.
Samningaviðræður við ýmsa aðila eru í gangi þessa dagana.
Hnappurinn Vefverslun mun birtast efst til vinstri á Mínum síðum þegar hún fer í loftið.