Ný skýrsla frá Kjaratölfræðinefnd

Fyrr í morgun var kynnt haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2024, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Kjaratölfræðinefnd er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði um tölfræði vegna kjarasamningsgerðar

Kynningin var í formi fjarfundar sem streymt var í gegnum heimasíðu Kjaratölfræðinefndar, en á þeirri síðu má m.a. finna skýrsluna í heild, samantekt skýrslu og ýmis tölfræðigögn. 

Ástráður Harladsson ríkissáttasemjari ávarpaði fundinn, auk þess sem Hrafnhildur Arnkelsdóttir, formaður kjaratölfræðinefndar fór yfir umfjöllun um laun og launaþróun. Arnaldur Sölvi Kristjánsson, sérfræðingur nefndarinnar, fjallaði stuttlega um stöðu efnahagsmála.

Fram kom að þessi skýrsla er níunda skýrsla nefndarinnar. Að þessu sinni skiptist skýrslan í fimm meginkafla sem fjalla um efnahagsmál, vinnumarkað, laun og launaþróun sem flokkað er eftir mörkuðum og heildarsamtökum launafólks, kjarasamninga gerða í yfirstandandi samningalotu, auk sérstakrar umfjöllunar um heildarsamtök launafólks eftir mörkuðum. Í skýrslunni er áhersla lögð á yfirstandandi kjarasamningslotu og miðað við að hún hafi hafist í febrúar 2024.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands.

Nánar um Kjaratölfræðinefnd
Nefndin hóf störf í desember 2019 og eru fulltrúar í henni frá forsætisráðuneyti, félags- og vinnumálamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins og Hagstofu Íslands. Með nefndinni var stofnað til samstarfs heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga um gerð og hagnýtingu talnaefnis um laun og efnahag til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Nefndinni er ætlað að stuðla að því að aðilar samkomulagsins hafi sameiginlegan skilning á eðli, eiginleikum og þróun þeirra hagtalna sem mestu varða við gerð kjarasamninga.