Nokkur sæti laus í Flateyjardalsferðina

Vert er að minna á að enn eru nokkur sæti laus í dagsferð félagsins út í Flateyjardal sem verður laugardaginn 27. águst nk. Hámarksfjöldi er 90 manns. Farið verður með rútu frá Akureyri. Nauðsynlegt er að hafa með sér nesti til dagsins, annað en grillmat. 

  • Ferðin kostar kr. 5.000 á mann, innifalið er akstur, grillmatur, safar og meðlæti.
  • Leiðsögumaður verður með í för.

Allar nánari upplýsingar um ferðatilhögun og skráning í ferðina er á skrifstofum félagsins, sími 460 3600 eða netfangið ein@ein.is.