Það getur skipt miklu máli fyrir verkalýðsfélög að vita á hvaða starfsstöðvum félagsmenn vinna. Bæði eru fyrirtæki og sveitarfélög, orðin stærri en áður var og mörg fyrirtæki hafa margar starfsstöðvar.
Réttur til að hafa trúnaðarmann á vinnustað er mikilvægur réttur launafólks og sá réttur byggir á fjölda starfsmanna á vinnustaðnum eða starfsstöðinni. Þegar félagið fær skilagrein frá stóru sveitarfélagi eru tugir eða hundruðir nafna á skilagreininni en engar frekari upplýsingar.
Því er það við t.d. afgreiðslu kjarasamninga, kosninga um verkföll og aðrar afgreiðslur félagsins sem leggja þarf í mikla vinnu við að vinna kjörskrá og alltaf hætta á að einhverjir verði utan kjörskrár, sem eiga að vera þar. Þegar kemur að trúnaðarmannakosningum er ljóst að félagsmenn Einingar-Iðju um allt félagssvæðið eiga rétt á fleiri trúnaðarmönnum en við höfum í dag. Ein leið til að tryggja að sem flestar starfsstöðvar geti kosið sér trúnaðarmann er að skrá sig á starfsstöðina.
Félagið mun síðan fylgjast með hvaða starfsstöðvar hafa fleiri en 5 félagsmenn og gangast fyrir trúnaðarmannakosningum á þeim.
Á Mínum síðum félagsins er auðvelt að skrá starfsstöð og einnig að tilkynna um breytingu á starfsmannaflokk og jafnvel skrá starfsheiti.
Einnig er nauðsynlegt að uppfæra ef þarf upplýsingar um síma, netfang og bankaupplýsingar. Ef netfangið er rétt getur verið að það þurfi að staðfesta það.