Mínar síður - persónublað

Nú á hver félagsmaður sitt eigið persónublað á Mínum síðum sem veitir góða yfirsýn yfir stöðu viðkom…
Nú á hver félagsmaður sitt eigið persónublað á Mínum síðum sem veitir góða yfirsýn yfir stöðu viðkomandi.

Mínar síður félagsins eru mjög notendavænar og byggjast upp á persónublaði viðkomandi félagsmanns.  Mínar síður eru nú þegar á nokkrum tungumálum og er unnið að fjölgun þeirra. Mínar síður bjóða upp á fjölbreytta möguleika til gagnvirkni og að félagsmenn geti sinnt málum sínum sjálfir á þeim.

Persónublað
Eins og segir hér að framan á hver félagsmaður nú sitt eigið persónublað á Mínum síðum sem veitir góða yfirsýn yfir stöðu viðkomandi. Á því má finna yfirlit yfir félagsgjöld (sem endurspegla heildarlaun), skipt eftir mánuðum og atvinnurekendum.   Jafnframt má sjá réttindi í sjóðum og hvernig þau hafa verið nýtt. Í flestum tilvikum er hægt að sækja ítarlegri upplýsingar um hvert atriði. Á því má einnig skoða orlofskosti, panta og ganga frá greiðslu og sækja um styrki sem eru í boði, bæði í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði.

Leiðbeiningar um nýjar Mínar síður félagsins

Kerfið er í stöðugri þróun og inniheldur m.a. kosningakerfi, hópa- og skeytakerfi, vefverslun, aðgangsstýrikerfi fyrir orlofsíðbúðir auk orlofskerfis, iðgjaldakerfis og styrkja og dagpeningakerfis.  Að auki er unnt að vinna fjölda skýrslna úr kerfinu. Tótal tengist BC bókahaldskerfi með veflausn og með þeirri samþættingu verður innheimta iðgjalda og afgreiðsla styrkja og dagpeninga sjálfvirk.

Starfsfólk félagsins hvetur félagsfólk til að fara inn á Mínar síður,  skoða þær og uppfæra ef þarf upplýsingar um viðkomandi, eins og síma, netfang og bankaupplýsingar. Ef netfangið er rétt getur verið að það þurfi að staðfesta það. Þá hvetur félagið til þess að skrá starfsstöð ef viðkomandi starfar hjá ríkinu, sveitarfélagi eðahjá  fyritæki með margar starfsstöðvar. Á mínum síðum félagsins er auðvelt að skrá starfsstöð og einnig að tilkynna um breytingu á starfsmannaflokk og jafnvel skrá starfsheiti.