Vert er að minna aftur á þetta. Eining-Iðja vill koma á framfæri upplýsingum varðandi nýjustu kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins:
Almennt starfsfólk á gistihúsum og hótelum raðast í launaflokk 7 eftir 3 mánaða reynslutíma. Þetta á við um störf sem snúa beint að gistiþjónustu vinnustaðanna. Aðrar reglur gilda fyrir starfsfólk í veitingaþjónustu.
Starfsfólk í baðlónum raðast í launaflokk 7 samkvæmt kjarasamningi. Starfsfólkið hefur sérhæfða þekkingu og ber sérstaka ábyrgð, m.a. í skyndihjálp.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Einingu-Iðju.