Vert er að minnast hér á vefráðstefnu Vinnueftirlitsins „Meira vinnur vit en strit“ sem haldin verður 19. nóvember nk. Ráðstefnan er liður í tveggja ára samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, félagsmálaráðuneytisins, samtaka aðila vinnumarkaðarins og VIRK sem ber yfirskriftina „Vinnuvernd er allra hagur. Hæfilegt álag – heilbrigt stoðkerfi 2020-2022, " en verkefnið er keyrt samhliða samnefndu vinnuverndarátaki Vinnuverndarstofnunar Evrópu (EU-OSHA).
Áherslan kemur til af því að stoðkerfisvandi er algengasta orsök fjarvista frá vinnu í Evrópu og er ein algengasta orsök örorku.
Markmið ráðstefnunnar er að varpa ljósi á þann víðtæka stoðkerfisvanda sem vinnandi fólk glímir við og benda á lausnir.
Nánari dagskrá má finna á vef Vinnueftirlitsins.
Ráðstefnan stendur frá klukkan 13.00 – 15.55 og verður streymt beint af vef Vinnueftirlitsins. Streymið má jafnframt nálgast í gegnum viðburð á facebook-síðu Vinnueftirlitsins eða í gegnum meðfylgjandi slóð: http://tiny.cc/vinnueftirlit
Ráðstefnan er opin öllum en hægt er að fylgjast með fréttum og skrá sig til þátttöku á facebook til að fá áminningu áður en hún hefst.