Mansal, misneyting og eftirlitshlutverk stéttarfélaganna

Ýmsar blikur eru á lofti á íslenskum vinnumarkaði um þessar mundir. Mikill gangur í ferðaþjónustu, lágt atvinnuleysisstig og vísbendingar um þenslu í hagkerfinu leiða að því að eftirspurn eftir starfsfólki í mannaflafrekar starfsgreinar er og verður mikil á næstu mánuðum. Því miður eru til atvinnurekendur, hér á landi sem og annars staðar, sem leita allra leiða til að fá sem ódýrast vinnuafl og skeyta litlu um aðbúnað eða aðstæður starfsfólksins. Ákveðnir hópar á vinnumarkaði eru sérstaklega berskjaldaðir fyrir misneytingu og þar má nefna aðflutt starfsfólk, flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd.  

Í dag, þriðjudaginn 24. maí, mun ASÍ halda fund á Hótel Keflavík þar sem eftirlitsfulltrúar stéttarfélaga og aðrir sem sinna því eftirliti munu koma saman og fjalla um einkenni vinnumansals, hópa sem eru sérstaklega berskjaldaðir fyrir mansali og misneytingu á vinnumarkaði og hvers konar aðstæður geta skapað jarðveg fyrir slík brot. Þá fær hópurinn innsýn í nýlega sakfellingu í vinnumansali en það er jafnframt fyrsta sakfelling í vinnumansali á Íslandi. 

Frá Einingu-Iðju munu þau Vilhelm Adolfsson, Verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits, og Rut Pétursdóttir þjónustufulltrúi mæta á fundinn.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 
13:00     Fundur hefst
13:05     Einkenni mansals og misneytingar á vinnumarkaði, Drífa Snædal, forseti ASÍ
13:30     Viðkvæmir hópar 
                  Jaðarsetning austur-evrópska karla á Íslandi, Aleksandra Leonardsdóttir, ASÍ 
                  Umsækjendur um alþjóðlega vernd, Qussay Odeh, túlkur og verkefnastjóri 
                  Úkraína og fjöldaflótti, Gylfi Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóri 
14:10     Dæmi úr verkalýðshreyfingunni
15:00    Kaffihlé
15:10     Aðstæður í atvinnugreinum og áhætta á misneytingu, Sara S. Öldudóttir, ASÍ
15:30    Fyrsta sakfelling í vinnumansali á Íslandi
                  Alda Hrönn Jóhannsdóttir, lögreglunni á Suðurnesjum
                  Kolbrún Benediktsdóttir, saksóknari 
16:40     Stuðningur við þolendur mansals, Jenný Kristín Valberg, Bjarkarhlíð
17:00     Fundi slitið