Lokun íbúða félagsins á höfuðborgarsvæðinu

Í frétt sem birtist á vef félagsins 15. febrúar sl. var sagt frá því að hugsanlega þyrfti að loka íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu frá 28. febrúar vegna fyrirhugaðs verkfalls starfsfólks í Eflingu hjá ræstingafyrirtækjum.

Þá stóð yfir atkvæðagreiðsla og ef verkfall yrði samþykkt þá þyrfti félagið að skella í lás, bæði í orlofs- og sjúkraíbúðum. Sólar ehf. sér um að þrífa íbúðir Einingar-Iðju fyrir upphaf leigu og það er algjörlega bannað að ganga í störf félagsmanna sem eru í verkfalli.

Nú er staðan sú að Efling hætti við fyrirhugað verkfall þar sem Samtök atvinnulífsins voru á sama tíma að láta kjósa um að setja á verkbann á félagsmenn Eflingar sem starfa undir samningi við SA.  Verkbann Samtaka atvinnulífsins tekur að óbreyttu gildi í næstu viku, fimmtudaginn 2. mars kl. 12:00 og er ótímabundið þar til samið verður.

Félagsmenn sem verða í íbúðum á Höfuðborgarsvæðinu þegar/ef verkbann hefst geta að sjálfsögðu klárað sína dvöl þar. Íbúðir eru ekki þrifnar á meðan leigu stendur.

Þeir sem þegar hafa bókað íbúð í byrjun mars þurfa að fylgjast vel með stöðu mála. Er nær dregur verður félagið í sambandi við viðkomandi félagsmenn ef þarf að fella niður leigur, þá verður hægt að fá inneign eða endurgreiðslu.