Lokað í Fjallabyggð í dag og á morgun

Skrifstofa félagsins í Fjallabyggð verður lokuð í dag og á morgun, þ.e. fimmtudaginn 11. maí og föstudaginn 12. maí 2023. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Svarað er í síma 460 3600 á Akureyri og á Dalvík á opnunartíma.

Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is

Við bendum á Mínar síður á heimasíðu félagsins. Þar geta félagsmenn m.a. skoðað og sótt rafrænt um þá styrki sem í boði eru í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði. Þá geta þeir séð ýmsar upplýsingar um sig sem félagið hefur, séð orlofspunktastöðu sína, skoðað laus orlofshús og pantað eða sótt um og greitt fyrir þau. Einnig séð greiðslur sem borist hafa af þeim og stöðu umsókna.