Lokað á Akureyri í dag frá 13:50

Í dag, 3. maí 2023, munum við loka kl. 13:50 á Akureyri vegna ársfundar Stapa. Opið verður á Dalvík og Fjallabyggð til kl. 16:00 og því verður svarað í síma 460 3600 til kl. 16:00. Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is sem verður svarað við fyrsta tækifæri.

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Við bendum á Mínar síður á heimasíðu félagsins. Þar geta félagsmenn skráð sig inn og séð ýmsar upplýsingar um sig sem félagið hefur, séð punktastöðu sína, skoðað og sótt um orlofshús og séð greiðslur frá félaginu. Einnig getur félagsmaður nú skoðað og sótt um rafrænt þá styrki sem í boði eru í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði.