Leikhúsferð fyrir lífeyrisþegar félagsins 26. mars nk.

Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Í fylgd með fullorðnum sem Leikfélag Hörgdæla sýnir á Melum í Hörgárdal. Sýningin verður laugardaginn 26. mars nk.

Í fylgd með fullorðnum er nýtt leikrit eftir Pétur Guðjónsson sem Leikfélag Hörgdæla frumsýndi fyrr í mars. Um er að ræða verk sem byggt er á lögum og textum Bjartmars Guðlaugssonar um Sumarliða og hans fólk, sem nánast hvert mannsbarn þekkti á árum áður og margir muna enn.

Sýningin hefst kl. 15:30 - Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 14:00 því áður en sýningin hefst verður boðið upp á kaffihlaðborð í Þelamerkurskóla.

Einnig verður boðið upp á akstur frá Fjallabyggð, Dalvík og Grenivík

Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600. (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar að gera)