Félagsfólki sem náð hafa lífeyrisaldri er boðið á gamanleikritið Beint í æð sem Leikfélag Fjallabyggðar sýnir í Tjarnarborg, menningarhúsi Fjallabyggðar. Sýningin verður sunnudaginn 24. mars og hefst kl. 14:00.
Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600.
Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 12:30, stoppað verður við skrifstofu félagsins á Dalvík á leiðinni til Ólafsfjarðar.
Akstur er einnig í boði frá Siglufirði og Grenivík.
Eftir sýninguna verður boðið upp á kaffihlaðborð.
Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða.