Síðastliðinn laugardag bauð félagið félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson sem verið er að sýna í Freyvangsleikhúsinu. Boðið var upp á kaffiveitingar í hléi.
Rúmlega 100 félagsmenn og makar þáðu boðið og skelltu sér í kaffi og með því og á skemmtilega leiksýningu.