Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson sem verið er að sýna í Freyvangsleikhúsinu. Sýningin verður laugardaginn 11. mars nk. og hefst kl. 15:00.
Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600. (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar til Akureyrar)
Boðið verður upp á kaffiveitingar í hléi.
Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða.