Leiðbeiningar fyrir Nýjar Mínar síður félagsins

Hægt er að nota rafræn skilríki eða auðkennisapp frá Auðkenni til að skrá sig inn á nýjar Mínar síður Einingar-Iðju sem teknar voru í notkun fyrr í dag, 1. nóvember 2024.

Á þeim er að finna persónublað sem inniheldur margvíslegar upplýsingar um réttindi félagsfólks. Hægt er að sækja um orlofshús, sjúkrastyrki og sjúkradagpeninga. Jafnframt er hægt að fylgjast með réttindaávinnslu og skilum atvinnurekenda á iðgjöldum. Félagsfólk sem vinnur eftir sveitarfélagasamningi getur fylgst með inneign í Félagsmannasjóði, sem er til útgreiðslu 1. febrúar ár hvert.

Hér má finna leiðbeiningar fyrir helstu aðgerðir inni á nýjum Mínum síðum félagsins.