Laus orlofshús um helgina

Vert er að benda félagsfólki, sem hefur áhuga á að kíkja í bústað um helgina, á að ennþá eru laus tvö orlofshús á Illugastöðum um helgina og þrjú hús eru laus á Einarsstöðum.

Áhugasamir geta bókað þessi hús, sem og önnur laus hús og íbúðir á næstunni, á Mínum síðum Einingar-Iðju.

Nú gildir fyrst panta, fyrst fá!

Til að komast inn á bókunarsíðuna, er smellt á takkann Orlofskerfi sem finna má efst til vinstri á Mínum síðum eða bláa takkann við Full réttindi  í orlofsrammanum á persónublaðinu. Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að bóka orlofseign