Laus orlofshús um helgina

Vert er að benda á að það er laust í nokkrum bústöðum um næstu helgi á Illugastöðum í Fnjóskadal og á Einarsstöðum í Héraði. Einnig er enn laust á þessum stöðum næstu helgar í maí.

Er ekki upplagt að skella sér í annað umhverfi og gera sér dagamun?

Kíkið endilega inn á Orlofsavef félagsins þar sem hægt er að sjá hvað er laust, panta og ganga frá greiðslu.