Á vef SGS segir að samkvæmt núgildandi kjarasamningi SGS og Samtaka Atvinnulífsins hækkuðu laun þann 1. janúar 2025. Kauptaxtar hækkuðu þá um 5,6% en að lágmarki um kr. 23.750. Laun þeirra sem ekki eru á taxtalaunum, heldur almennum mánaðarlaunum, hækkuðu um 3,5% en þó að lágmarki um kr. 23.750.
Til nánari útskýringar þá hækkuðu mánaðarlaun sem eru yfir kr. 678.586 um 3,5%, en laun sem eru undir kr. 678.586, en yfir lágmarkstaxta kjarasamnings, hækkuðu um kr. 23.750 á mánuði. Þess þarf þó að gæta að laun séu eftir breytinguna að lágmarki jafngóð og skv. kauptaxta kjarasamnings. Með almennum mánaðarlaunum er átt við föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu.
Þá hækkuðu kjaratengdir liðir samningsins um 3,5% frá sömu dagsetningu.
Starfsgreinasambandið hefur gefið út nýja kauptaxta vegna starfa á almennum vinnumarkaði þar sem hægt er að sjá hvernig mismunandi launaliðir hækka út frá launaflokkum og starfsaldri.
Kauptaxtar SGS fyrir starfsfólk á almennum vinnumarkaði
Kauptaxtar SGS fyrir starfsfólk í veitinga-, gisti- og þjónustustarfsemi
Eining-Iðja hvetur félagsmenn að fylgjast vel með að umsamdar launahækkanir skili sér inn á launareikninga og birtist með réttum hætti á launaseðli janúarmánaðar. Jafnframt eru félagsmenn hvattir til að ganga úr skugga um hvort desemberuppbót hafi skilað sér til þeirra með réttum hætti, en hana átti að greiða út í síðasta lagi 15. desember síðastliðinn. Ef einhverjar spurningar vakna eru félagsmenn hvattir til að hafa samband.
Einnig er vert að benda á reiknivél þar sem sjá má yfirlit yfir launahækkanir á samningstímanum, bæði út frá kauptöxtum og almennum launum.
Vert er einnig að minna á að samkvæmt kjarasamningi SGS og SA þá á starfsfólk rétt á viðtali við yfirmann einu sinni á ári um störf sín, þ.m.t. frammistöðu og markmið og hugsanlegar breytingar á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali skal það veitt innan tveggja mánaða og liggi niðurstaða þess fyrir innan mánaðar.
Nýir kauptaxtar félagsins verða settir á netið síðar í janúar.