Hvernig væri að skella sér austur?

Viltu skreppa austur í september? Vert er að benda félagsmönnum á að flestar helgar í september eru lausar í orlofshúsum félagsins á Einarsstöðum á Héraði. Kíkið á Orlofsvef félagsins til að sjá hvað er í boði

Tímabilið 1. október til 1. maí
Þeir sem áhuga hafa á að leigja hús á Einarsstöðum yfir veturinn er bent á að hafa samband við staðarhaldara í síma 861 8310 milli kl. 9 og 16 virka daga eða senda tölvupóst á einarsstaðir@simnet.is, en hann sér um að leigja út hús á tímabilinu 1. október til 1. maí. Varðandi tímabilið 1. maí til 2. júní 2023 þá verður hægt að leigja á því tímabili í gegnum orlofsvef félagsins.