Kynning í Hólaskóla

Þetta er í fjórða sinn sem félagið er beðið um að koma með slíka kynningu í skólann en á myndinni má…
Þetta er í fjórða sinn sem félagið er beðið um að koma með slíka kynningu í skólann en á myndinni má sjá Björn er hann var að hefja fyrirlesturinn.

Í gær fóru tveir starfsmenn félagsins ásamt einum fulltrúa frá Öldunni stéttarfélagi í Hólaskóla og voru þar með kynningu á réttindum og skyldum á vinnumarkaði fyrir nemendur í Ferðamáladeild skólans.

Þetta er í fjórða sinn sem félagið er beðið um að koma með slíka kynningu í skólann. Þarna voru á ferð Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins og Rut Pétursdóttir þjónustufulltrúi á kjarasviði félagsins ásamt Þórarni Sverrissyni, formanni Öldunnar stéttarfélags.