Kvennaverkfall boðað 24. október

Á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks blása til heils dags kvennaverkfalls þann 24. október 2023. Sýnum samstöðu í verki og mætum á útifund sem verður á milli kl. 11:00 og 11:45 á Ráðhústorgi á Akureyri. Á höfuðborgarsvæðinu verður safnast saman í baráttuhug á Arnarhóli þar sem útifundur fer fram kl. 14:00. Fleiri fundir eru í smíðum víðsvegar um land.

Konur og kvár sem geta eiga að leggja niður störf; ekki mæta til vinnu, ekki annast börnin s.s. gefa þeim mat eða smyrja nesti né sinna veikum fjölskyldumeðlimum heldur fá karlkyns fjölskyldumeðlim til að standa vaktina. Sleppa á öllu sem gæti talist til starfa hvort sem er átt við launaða vinnu, eða ólaunaða líkt og umönnun barna, sinna heimilinu eða þriðju vaktina svokölluðu. Svo eru þau hvött til mæta á útifundi á Arnarhóli eða í sinni heimabyggð og sýna samstöðu í verki.

Þótt mikið hafi áunnist frá árinu 1975 hefur ekki verið orðið við þeirri meginkröfu að störf kvenna séu metin að verðleikum. Atvinnutekjur kvenna eru enn 21% lægri en karla og hefðbundin kvennastörf eru talsvert verr launuð en karlastörf. Fólk sem starfar við ræstingar, umönnun og menntun barna, þjónustu við veikt fólk, fatlað fólk og aldrað fólk eru á einna lægstu launum í íslensku samfélagi. Atvinnuþátttaka kynjanna er svipuð — en ábyrgð þeirra á heimilishaldi og umönnun er enn afar ójöfn. Þá verður ekki beðið lengur eftir róttækum aðgerðum gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi sem yfir 40% kvenna verða fyrir á lífsleiðinni, en trans fólk, þ.m.t. kvár, konur með fötlun og konur af erlendum uppruna verða fyrir enn meira ofbeldi en aðrir hópar.

Yfirskrift verkfallsins er „Kallarðu þetta jafnrétti?” og vísar til þess að konur og kynsegin fólk fái ítrekað þau skilaboð að vegna þess að Ísland sé fremst meðal jafningja þegar kemur að jafnréttismálum, eigi þau ekki heimtingu á frekari aðgerðum. En við bíðum ekki lengur - og krefjumst aðgerða strax! Megin þemu verkfallsins eru kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og kerfisbundið vanmat á störfum kvenna.

Aðstand­end­ur kvenna­verk­falls:

  1. Aflið (Ak­ur­eyri) 
  2. Banda­lag kvenna í Reykja­vík 
  3. Druslu­gang­an
  4. Druslu­bæk­ur og Doðrant­ar
  5. Delta Kappa Gamma, fé­lag kvenna í fræðslu­störf­um
  6. Femín­ísk fjár­mál 
  7. Femín­ista­fé­lag HÍ
  8. Fé­lag um Fjöru­verðlaun­in, bók­mennta­verðlaun kvenna á Íslandi 
  9. Hags­muna­sam­tök knatt­spyrnu­kvenna
  10. IceFem­in  
  11. Knúz.is 
  12. Kven­fé­laga­sam­band Íslands 
  13. Kvenna­hreyf­ing ÖBÍ 
  14. Kvennaráðgjöf­in
  15. Kvenna­sögu­safn Íslands 
  16. Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands 
  17. Rót­in  
  18. Sam­tök um kvenna­at­hvarf 
  19. Sam­tök­in '78  
  20. Soroptim­ista­sam­band Íslands 
  21. Stíga­mót 
  22. UN Women 
  23. W.O.M.E.N. in Ice­land – Sam­tök kvenna af er­lend­um upp­runa 
  24. Alþýðusam­band Íslands 
  25. Banda­lag há­skóla­manna 
  26. BSRB 
  27. Fé­lag ís­lenskra hjúkr­un­ar­fræðinga 
  28. Kenn­ara­sam­band Íslands 
  29. Ung­ar at­hafna­kon­ur                                      
  30. WIFT – Kon­ur í kvik­mynd­um og sjón­varpi            
  31. Q fé­lagið  - fé­lag hinseg­in stúd­enta HÍ 

Kvennaverkfall 2023 – almennt hvatningarbref

Women’s Strike 2023 – a letter of encouragement to individuals

Strajk kobiet