Eining-Iðja mun að sjálfsögðu sýna stuðning í verki og taka þátt í kvennaverkfalli þriðjudaginn 24. október nk. Um 66% starfsfólks félagsins eru konur og því má búast við skertri þjónustu á skrifstofum Einingar-Iðju.
Skrifstofur félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð verða lokaðar allan daginn og einungis verða karlmenn við vinnu þennan dag á skrifstofu félagsins á Akureyri.
Félagsfólk er hvatt til að nýta sér rafrænar lausnir stéttarfélagsins þennan dag. Á heimasíðu félagsins má finna allar helstu upplýsingar og á Mínum síðum Einingar-Iðju getur félagsfólk m.a. skoðað og sótt rafrænt um þá styrki sem í boði eru í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði, skoðað laus orlofshús, pantað og greitt fyrir þau.
Hægt er að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is
Eining-Iðja skorar á félagsfólk að leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir jafnrétti á þessum degi og skorar jafnframt á fyrirtæki að sýna samstöðu í verki svo konur og kvár geti lagt niður störf þennan dag, án skerðingar á launum. Mætum á baráttufund sem verður á milli kl. 11:00 og 11:45 á Ráðhústorgi á Akureyri.
Nánari upplýsingar um verkfallið og baráttufundinn á Ráðhústorgi á Akureyri
Starfsfólk Einingar-Iðju þakkar skilninginn.