Árleg Kvennaráðstefna ASÍ verður þetta árið haldin á Hótel KEA á Akureyri dagana 14. og 15. nóvember. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Ryðjum hindrunum úr vegi – kvenfrelsi og stéttabarátta.
Markmið Kvennaráðstefnunnar í ár er eins og alltaf að virkja samtakamátt ASÍ kvenna til að styðja og hvetja konur til áhrifa í hreyfingunni, ásamt því að fræðast, brýna verkalýðshugsjónina og hafa gaman saman. Einnig að setja málefni er lúta að velferð, öryggi og réttindum launakvenna rækilega á dagskrá.
Helstu jafnréttisáherslur frá 45. þingi ASÍ eru að leiðrétta skuli vanmat á kvennastörfum, taka skuli enn betur á móti þolendum kynferðislegrar áreitni og ofbeldi í vinnu og vinnutengdu umhverfi og að beina þurfi sjónum að stöðu foreldra og þrýsta á aðgerðir sem draga úr umönnunarbilinu sem myndast hefur milli fæðingarorlofs og leikskóla. Þessar sömu áherslur verða til grundvallar á ráðstefnu ársins. Fyrirkomulag ráðstefnunnar verður með þeim hætti að sérhverju félagi býðst að halda utan um 45 mínútna málstofu um málefni sem á því brennur og er því dagskrá ráðstefnunnar í höndum þátttakenda.
Félagið mun eiga sex fulltrúa á ráðstefnunni og mun félagið sjá um málstofuna Kynjabókhald með öðrum augum.
Dagskrá
Fimmtudagurinn 14. nóvember
13.00 - 13.15 Ávarp ráðstefnustýru, Óskar Helgadóttur, varaformanns Framsýnar
13.15 - 16.00 Málstofur
Málstofa A 13.15 - 14.00 Málstofa I 14.00 - 14.10 Kaffihlé 14.15 - 15.00 Málstofa II
15.00 - 15.10 Kaffihlé 15.15 - 16.00 Málstofa III |
Málstofa B 13.15 - 14.00 Málstofa I 14.00 - 14.10 Kaffihlé 14.15 - 15.00 Málstofa II
15.00 - 15.10 Kaffihlé 15.15 - 16.00 Málstofa III |
Málstofa C 13.15 - 14.00 Málstofa I 14.00 - 14.10 Kaffihlé 14.15 - 15.00 Málstofa II Seinni hluti: Leiðtogaþjálfun fyrir næstu kynslóð - konur af erlendum uppruna 15.00 - 15.10 Kaffihlé 15.15 - 16.00 Málstofa III |
16.00 - 16.20 |
Samantekt málstofa |
16.30 - 18.00 |
Heimboð til Driftar EA þar sem Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra, býður ráðstefnugestum til móttöku í húsakynnum félagsins að Strandgötu 1 þar sem hún mun segja frá starfsemi félagsins og persónulegri reynslu sinni og áskorunum en hún hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu bæði sem stjórnandi og frumkvöðull |
19.30 - 23.30 |
Hátíðarkvöldverður samanstendur af þriggja rétta kvöldverði ásamt veigum og heimagerðri dagskrá undir styrkri stjórn skemmtanastýru kvöldsins; Svanhildar Ólafar Þórsteinsdóttur, VR |
Föstudagurinn 15. nóvember
09.00 - 09.45 |
Ráðstefnugestir fara aftur í sína málstofu og útbúa skjal með niðurstöðum út frá fyrirlestrum og umræðum |
09.45 - 10.30 |
Hópefli og uppbrot í höndum Sesselíu Ólafsdóttur, leikkonu og leiklistarkennara á Akureyri Samtímis útbýr ritnefnd Kvennaráðstefnu ASÍ 2024 annars vegar orðsendingu til miðstjórnar um stöðu kvenna innan hreyfingar og hins vegar tillögur að kröfum ASÍ inn í Kvennaár 2025 |
10.30 - 10:45 |
Kaffihlé |
10.45 - 11.30 |
Kröfur ASÍ-kvenna og orðsending Kvennaráðstefnu bornar upp til samþykkis |
11.30 - 12.30 |
Hádegishlaðborð |
12.40 - 14:15 |
Skemmtilok á Kvennaráðstefnu ASÍ 2024 er menningarferð um Akureyri. Ráðstefnugestir sóttir á Hótel KEA. Við tekur stutt rútuferð um bæinn, þar sem keyrt verður fram hjá áhugaverðum stöðum og veitt innsýn í sögu Akureyrar, auðvitað með kvennaáherslum! Næst er farið í heimsókn á Iðnaðarsafnið þar sem fulltrúi tekur á móti gestum og greinir frá þátttöku kvenna í atvinnuvinnuuppbyggingu á svæðinu og gefst þeim jafnframt tækifæri að skoða safnið. |