Kvennaráðstefna ASÍ 2022 - Fitjum upp á nýtt

Mynd af vef ASÍ.
Mynd af vef ASÍ.

Kvennaráðstefna ASÍ „Fitjum upp á nýtt“ var haldin dagana 7. og 8. apríl sl. undir yfirskriftinni „Örugg afkoma og velferð kvenna.“ 

Fjórir fulltrúar frá Einingu-Iðju sóttu ráðstefnuna, en meginmarkmið ráðstefnunnar var að efla tengslanet kvenna og styrkja konur til meiri áhrifa innan verkalýðshreyfingarinnar. Í fyrsta sinn í 106 ára sögu Alþýðusambandsins er kvennaráðstefnan haldin undir forystu kvenforseta. Í karllægri verkalýðshreyfingu skiptir máli að konur séu í forsvari til jafns við karla. Innlegg þátttakendanna, sem flutt voru á ráðstefnunni, sneru að öryggi kvenna á vinnustöðum, vanmati á vinnuframlagi kvenna, bæði launuðu og ólaunuðu, og afkomu kvenna á efri árum.