Evrópusamband verkalýðsfélaga (ETUC) hefur birt ákall þar sem þess er krafist að stjórnmálamenn í álfunni fari að vilja almennings og bregðist við réttmætum kröfum launafólks um aðgerðir til að lina afleiðingar afkomukreppunnar (e. Cost of Living Crisis).
Í ákalli ETUC segir að laun séu ekki orsök þeirrar miklu verðbólgu sem nú geisar víða um lönd. Kreppan bitni af mestum þunga á launafólki sem verði fyrir kaupmáttarskerðingu vegna mikilla hækkana á nauðsynjavörum. Þessi þróun ýti enn frekar undir ójöfnuð þar sem láglaunafólk verði fyrir mestum búsifjum.
Atvinnurekendur, stjórnvöld og Evrópusambandið séu skyldugir til að grípa þegar í stað til ráðstafana til að bregðast við afkomukreppunni með því að hækka laun, koma nauðstöddum fjölskyldum til hjálpar og auka skattlagningu á ofsagróða og auðmagn.
ETUC krefst þess að áætlun í sex liðum verði hrundið af stað hið fyrsta:
Segir í lok ákallsins að stjórnvöld og Evrópusambandið geti ekki leitt kreppuna hjá sér og beðið þess að henni linni. Verði ekkert að gert eða gripið til rangra aðgerða á borð við vaxtahækkanir, frystingu launa og niðurskurð opinberra útgjalda verði afleiðingarnar skelfilegar.
Innan ETUC starfa 93 verkalýðsfélög og tíu evrópsk verkalýðssamtök með samtals 45 milljónir félaga í 41 Evrópuríki.