Síðasti dagur til að skila umsókn í sjúkra- og fræðslusjóði

Vert er að minna aftur á að í  desember þarf að skila inn umsókn og gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram í síðasta lagi 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf umsókn og gögnum til félagsins í síðasta lagi í dag, 20. desember, til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2023.

ATHUGIÐ! Nú er hægt að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum félagsins

Upplýsingar um sjúkrasjóð og fræðslustyrki