Í dag er lokadagur til að borga orlofshús og íbúðir

Minnum á að þeir sem fengu úthlutað orlofsíbúð eða orlofshúsi næsta sumar þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi í dag, 2. maí 2023. Ef ekki er búið að greiða 2. maí er litið svo á að viðkomandi ætli ekki að nýta sér orlofskostinn og dettur því pöntunin út.

Þeir sem fengu úthlutað þurfa að skrá sig inn á orlofsvef félagsins til að greiða, þar á forsíðu má finna hlekkinn Hér getur þú skoðað og greitt fyrir þínar umsóknir. 

Síminn á skrifstofum félagsins er 460 3600.

5. maí 2023 kl. 10:00 verður opnað á orlofsvefnum fyrir það sem enn verður laust í orlofskostum sumarsins. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur.