Hvernig væri að skella sér í kvöldsund á Illugastöðum?

Mynd af Facebook síðu byggðarinnar
Mynd af Facebook síðu byggðarinnar

Í dag, mánudaginn 26. ágúst, verður lengri opnun í sundlauginni sem er í Orlofsbyggðinni á Illugastöðum. Á Facebook síðu byggðarinnar segir að þau ætli að breyta aðeins til og hafa opið til kl. 22:00.

"Minnum á ljósa-/kertakvöldið í kvöld. Sundlaugargarðurinn ljósum skreyttur, uppáhellt kaffi, ís fyrir börnin. Dagurinn lofar mjög góðu veðurfarslega séð 🌤☀️✨svo það er um að gera að fá sér bíltúr og skella sér í kvöldsund því það er fátt notalegra en að svamla í volgu vatninu í rökkrinu og ljósadýrðinni........ opið til klukkan 22 allir velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta 😘"