Hvernig væri að skella sér í kvöldsund á Illugastöðum?

Á morgun, fimmtudaginn 24. ágúst, verður lenri opnun í sundlauginni sem er í Orlofsbyggðinni á Illugastöðum. Á Facebook síðu byggðarinnar segir að þau ætli að breyta aðeins til og hafa opið til kl. 22:00.

"Tónlist og kaffi á kantinum, kertaljós og önnur lýsing um kvöldið. Okkur þætti vænt um að sjá sem flesta koma og taka þátt í öðruvísi upplifun í litlu sveitasundlauginni áður en henni verður lokað þetta sumarið. Það eru aðeins 27 km. frá Akureyri í Illugastaði, ef farið er um Vaðlaheiðargöng, svo þetta er tilvalinn sundrúntur og allir velkomnir."