Hvað eru gul stéttarfélög?

Undanfarna daga hafa gul stéttarfélög verið mikið til umræðu í tengslum við meint stéttarfélag Virðingu, sem stofnað var til af hálfu atvinnurekenda í veitingageiranum.

Áður hafði svipuð umræða verið áberandi í tengslum við svipað félag, Íslenska flugstéttafélagið, sem rekstraraðilar flugfélagsins Play stofnuðu fyrir starfsfólk sitt. Slík félög standa alla jafna utan heildarsamtaka launafólks, eins og ASÍ, og ganga jafnvel erinda atvinnurekenda og gegn hagsmunum launamanna.

Hér á vef ASÍ má heyra endurbirt viðtal við Sigurð Pétursson sagnfræðing sem tekið var fyrir nokkru en hann hefur sérstaklega kynnt sér svokölluð gul stéttarfélög. Hér segir hann frá slíkum félögum í nútíð og fortíð.