Húsbílar/ferðavagnar við bústaði í orlofshúsabyggðum

Félagið hefur fengið fyrirspurnir um það hvort leyfilegt sé að hafa ferðavagna/húsbíl við bústaði í orlofshúsabyggðum. 

Vegna þessa vill félagið taka fram að það er ekki leyfilegt að gista í ferðavögnum eða húsbílum við bústaðina í orlofshúsabyggðum, oft eru tjaldsvæði ekki langt undan og er fólki bent á að nýta sér það.

Þetta er fyrst og fremst af öryggisástæðum, rafmagnsnotkun o.fl. og oft er aðgengi heldur ekki gott að bústöðunum með stóra bíla eða ferðavagna.