Húsafell - opnað fyrir leigu á vefnum

Nú geta félagsmenn bókað á Mínum síðum Einingar-Iðju nýtt orlofshús félagsins í Húsafelli. 

Þetta er fyrsta orlofshúsið sem félagið eignast á svæðinu og er það allt hið glæsilegasta. Undanfarin ár hefur félagið tekið á leigu hús á svæðinu og hefur mikil eftirspurn verið eftir þessum stað og því er þetta góð viðbót við orlofskosti sem félagið á.

Nýja húsið er um 83 fermetrar að stærð með öllum helstu þægindum, stórum palli og að sjálfsögðu er heitur pottur við húsið. Svefnherbergi eru þrjú, tvö hjónaherbergi og í báðum eru tvö 80 cm rúm sett saman og eitt herbergi með koju á þremur hæðum, neðsta kojan er 120 cm en tvær efri eru 80 cm breiðar. Svefnpláss er fyrir átta manns. Eldhús og stofa eru í sama rýminu.