Á heimasíðu SÍMEY segir að Það var hátíð í bæ í SÍMEY í gær á brautskráningarhátíð. Vel var mætt til brautskráningarinnar og veðurguðirnir voru í hátíðarskapi. Þrjátíu og sjö nemendur úr sex námsleiðum útskrifuðust í gær.
Námsleiðirnir eru:
Ávarp útskriftarnema flutti Guðrún Lilja Curtis, sem í gær lauk tveggja ára námi af stuðningsfulltrúabrú.
Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri SÍMEY, sagði í ávarpi sínu við brautskráninguna að það væri ætíð gleðiefni að ljúka áföngum í lífinu, nám væri einn af þeim. „Að ljúka námi, af hvaða tagi sem er, er ætíð gleðiefni, þá er tími til að staldra við, líta yfir farinn veg og ígrunda aðeins hverju við höfum bætt við okkur. Nám er ekki bara hið „bóklega“, það er líka sú staðreynd að hafa tekið skrefið, að hafa kynnst nýju fólki, farið út fyrir kassann, tekist á við nýjungar og nýja tækni. Að hafa mögulega mistekist, hafa haldið áfram og kannski lært af því. Fyrir allt þetta eruð þið lýsandi dæmi og það ber að óska ykkur til hamingju! Framhaldsfræðslan á að vera nákvæmlega vettvangur fyrir þetta, að veita fullorðnu fólki svigrúm til að finna sjálft sig í viðeigandi umhverfi þar sem það hefur ráðrúm til að tengja saman námsvettvang og sinn reynsluheim og þekkingu.“
Valgeir sagði að reikna mætti með að fjöldi þátttakenda í námi hjá SÍMEY á ári sé um þrjú þúsund, í námi, raunfærnimati og ráðgjöf. Samkvæmt þessu sé SÍMEY fjölmennasta menntastofnun í Eyjafirði og þriðja stærsta símenntunarmiðstöð landsins.