Hætt við utanlandsferðina

Félagið tók þá ákvörðun, í samráði við ferðaskrifstofuna, að hætta við utanlandsferðina sem fyrirhuguð var næsta sumar til Ítalíu.

Skráningar í ferðina fóru vel af stað fyrsta daginn sem opið var fyrir þær, en vegna óvissu vegna Covid voru strax farnar að berast afbókanir í hana og því var þessi ákvörðun tekin núna.