Endurgreiðsluhlutfall fræðslustyrkja breytist 1. október

Minnum á að aukið endurgreiðsluhlutfall styrkja úr fræðslusjóðunum Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt mun lækka á ný um næstu mánaðamót. 

Vegna áhrifa frá Covid 19 settu fræðslusjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt af stað átak í fræðslu sem hófst 15. mars 2020. Hluti átaksins fólst í því að endurgreiðsluhlutfall styrkja hækkaði tímabundið úr 75% í 90% hjá bæði fyrirtækjum og til einstaklinga með síðustu lokadagsetningu 30. september 2022  og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem haldin eru/byrja innan þessa sama tímaramma.

Stjórnir sjóðanna hafa nokkrum sinnum á tímabilinu ákveðið að framlengja 90% endurgreiðsluhlutfallið og ef sú verður raunin núna þá munum við setja inn frétt um það.

Breytingar á úthlutunarreglum voru eftirfarandi:

Endurgreiðslur til fyrirtækja vegna kostnaðar við námskeiðahald, voru hækkaðar úr allt að 75% í allt að 90% af styrkhæfum heildarkostnaði. Sveitamennt og Ríkismennt veita 100% styrki til stofnana sveitarfélaga og ríkisstofnana.

Hámarksupphæð einstaklingsstyrkja verður áfram kr. 130.000 á ári miðað við núverandi reglur.  Hlutfalli endurgreiðslu var hins vegar breytt og er 90% í stað 75% af kostnaði við námið.

Tómstundstyrkir sem voru 75% en að hámarki kr. 30.000 á ári eru í sama hámarki og hefðbundnir styrkir, það er kr. 130.000 á ári. Hlutfall endurgreiðslunnar verði sömuleiðis 90% af viðurkenndum kostnaði við námið.

Nánari upplýsingar veita Kristín Njálsdóttir, kristin@landsmennt.is og Hulda Björg Jóhannesdóttir, hulda@landsmennt.is í síma 599-1450 eða á tölvupósti.

Hægt er að sjá reglur vegna einstaklingsstyrkja hér: Landsmennt – Sveitamennt – Ríkismennt

Hægt er að sjá reglur vegna fyrirtækjastyrkja og styrkja til stofnana sveitarfélaga og ríkisins hér: 

Landsmennt – Sveitamennt – Ríkismennt