Vert er að minna félagsmenn á að nú geta þeir farið inn á mínar síður félagsins og bókað sjálfir orlofshús eða íbúðir og á það einnig við um orlofshúsin á Einarsstöðum. Áður en nýja félaga- og orlofskerfið var tekið í notkun sá staðarhaldari svæðisins um leiguna á veturna.
Mínar síður - Að bóka orlofseign
Með nýja kerfinu er nú alltaf hægt að bóka orlofshús um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi. Kerfið virkar þannig að á miðnætti bætist alltaf einn dagur við kerfið sem hægt er að bóka. Því er ekki lengur um að ræða eitthvað ákveðið vetrarleigutímabil eins og var.
Sumartímabil orlofshúsa í ár verður frá 30. maí til 5. september og orlofsíbúða frá 4. júní til 3. september. Er nær dregur verður auglýst orlofskostir sumarsins og hvenær opnað verður fyrir umsóknir.
Um jól, áramót og páska eru einungis vikuleigur í boði í öllum orlofskostum félagsins.
Til að komast inn á bókunarsíðuna, er smellt á takkann Orlofskerfi sem finna má efst til vinstri á Mínum síðum eða bláa takkann við Full réttindi í orlofsrammanum á persónublaðinu. Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Nýjar Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að bóka orlofseign