Hægt að bóka Einarsstaði á Mínum síðum

Til þessa hefur staðarhaldari á Einarsstöðum á Héraði séð um að leigja út orlofshús félagsins á tímabilinu 1. október til 1. maí ár hvert. Ákveðið var með nýju félaga- og orlofskerfi að breyta því fyrirkomulagi og geta félagsmenn nú sjálfir bókað orlofshús á Einarsstöðum á þessum tíma á Mínum síðum félagsins. Búið er að opna fyrir pantanir á Mínum síðum en hægt er að bóka hús frá og með 28. nóvember nk.

Mínar síður - Að bóka orlofseign
Með nýja félaga- og orlofskerfinu sem félagið tók nýverið í notkun varð sú breyting að nú verður alltaf hægt að bóka orlofshús um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi. Kerfið virkar þannig að á miðnætti bætist alltaf  einn dagur við kerfið sem hægt er að bóka. 

Til þessa hefur verið opnað fyrir vetrarleigu þann 1. ágúst ár hvert en með þessu nýja kerfið verður sem sagt breyting þar á. Sumartímabil orlofshúsa í ár verður frá 30. maí til 5. september og orlofsíbúða frá 4. júní til 3. september. Er nær dregur verður auglýst orlofskostir sumarsins og hvenær opnað verður fyrir umsóknir.

Um jól, áramót og páska eru einungis vikuleigur í boði í öllum orlofskostum félagsins.

Til að komast inn á bókunarsíðuna, er smellt á takkann Orlofskerfi sem finna má efst til vinstri á Mínum síðum eða bláa takkann við Full réttindi  í orlofsrammanum á persónublaðinu. Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Nýjar Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að bóka orlofseign