Grófin geðrækt 10 ára - Styrktartónleikar

Í dag, þriðjudaginn 10. október, á Alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn, fagnar Grófin Geðrækt 10 ára starfsafmæli sínu. Af þessu tilefni verður blásið til styrktartónleika næsta fimmtudag þar sem fjöldinn allur af frábæru tónlistarfólki mun koma fram.

Tónleikarnir verða haldnir fimmtudaginn 12. október á Verkstæðinu Strandgötu 53 á Akureyri og er miðaverð kr. 4000, en að sjálfsögðu má styrkja Grófina og borga meira.

Húsið opnar kl. 19:00 og hefjast tónleikarnir kl. 20:00.

Fram koma:

  • Bryndís Ásmunds
  • Daníel Andri
  • Helgi og hljóðfæraleikararnir
  • Hvanndalsbræður
  • Hælsæri
  • Magni Ásgeirs
  • Miomantis
  • Tonnatak
  • Vandræðaskáld

Láttu þetta ekki fram hjá þér fara!