Grenivík í dag og Akureyri í kvöld - Kynning á nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins

Félagið mun kynna nýjan kjarasamning SGS við Samtök atvinnulífsins á fimm fundum dagana 12., 13. og 14. desember 2022. Í dag kl. 17:00 verður kynning á Grenivík og í kvöld kl. 20:00 verður kynning á Akureyri.

Sýnum ábyrga afstöðu! Mætum á fund og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði um hann. 

Hér má skoða kynningarefni um samninginn, m.a. með nokkrum dæmum um hækkanir eftir starfsheitum. enska - pólska

Miðvikudagur 14. desember

  • Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 17:00 
  • Akureyri: Í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins, Skipagötu 14, kl. 20:00

ATHUGIÐ! Þessir fundir eru fyrir félagsmenn sem starfa á almenna markaðinum, ekki er búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum. 

Rafræn atkvæðagreiðsla fer fram á ,,Mínum síðum félagsins.” Atkvæðagreiðsla hófst kl. 12 föstudaginn 9. desember og lýkur kl. 12 á hádegi mánudaginn 19. desember. 

Sýnum ábyrga afstöðu! Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.