Gallup könnun félagsins - nöfn vinningshafa

Elsa skrifstofustjóri afhenti Sigrúnu sinn vinning og Anna formaður afhenti Maríu vinninginn.
Elsa skrifstofustjóri afhenti Sigrúnu sinn vinning og Anna formaður afhenti Maríu vinninginn.

Nýlega framkvæmdi Gallup könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Könnunin var líka happdrættismiði því allir sem tóku þátt gátu unnið veglega vinninga. Í bréfinu sem þátttakendur fengu var lukkunúmer. Í byrjun vikunar var dregið og voru nöfn eftirfarandi félagsmanna Einingar-Iðju dregin út. 

  • Tveir vinningar að upphæð kr. 150.000. Eitt stk. á hvort félag:

    • Sigrún Aðalsteinsdóttir.

  • Tveir vinningar að upphæð kr. 50.000. Eitt stk. á hvort félag:

    • María Indriðadóttir.

  • Fjórir vinningar, vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna. Tvö stk. á hvort félag:

    • Jacek Piotr Dawidowicz.

    • Líf Sigurðardóttir.

20 þátttakendur lentu líka strax í happdrættispotti, 10 frá hvoru félagi, voru í raun dregnir út áður en þeir svöruðu. Hinir heppnu vinningshafar fengu tilkynningu um það um leið og þeir höfðu lokið við að svara könnuninni, um var að ræða kr. 15.000 inneign á debetkorti sem þeir nálguðust á skrifstofu félagsins á Akureyri. Í ár hafa einungis tveir vinningshafar nálgast sitt kort, sem er sama niðurstaða og í fyrra ólíkt tveimur árum þar á undan þegar allir vinningarnir gengu út. Þetta þýðir því miður að átta félagsmenn Einingar-Iðju gætu verið að missa af því að fá vinning upp á kr. 15.000. Það getur borgað sig að taka þátt!

Eining-Iðja óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar þeim fjölmörgu sem gáfu sér tíma til að taka þátt.