Gallup könnun félagsins - nöfn vinningshafa

Elsa skrifstofustjóri afhenti Andra og Sögu Kareni vinningana.
Elsa skrifstofustjóri afhenti Andra og Sögu Kareni vinningana.

Nýlega framkvæmdi Gallup könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Könnunin var líka happdrættismiði því allir sem tóku þátt gátu unnið veglega vinninga. Í bréfinu sem þátttakendur fengu var lukkunúmer. Búið er að draga og voru nöfn eftirfarandi félagsmanna Einingar-Iðju dregin út. 

  • Tveir vinningar að upphæð kr. 150.000, eitt stk. á hvort félag: Andri Sigurjónsson.
  • Tveir vinningar að upphæð kr. 50.000, eitt stk. á hvort félag: Saga Karen Björnsdóttir.
  • Fjórir vinningar, vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna. Tvö stk. á hvort félag: Atanas Kirilov Lefedzhiev og Pétur Ásbjarnarson.

20 þátttakendur lentu líka strax í happdrættispotti, 10 frá hvoru félagi, voru í raun dregnir út áður en þeir svöruðu. Hinir heppnu vinningshafar fengu tilkynningu um það um leið og þeir höfðu lokið við að svara könnuninni, um var að ræða kr. 15.000 inneign á debetkorti sem þeir nálguðust á skrifstofu félagsins á Akureyri. Í ár hafa einungis tveir vinningshafar nálgast sitt kort, ólíkt síðustu tveimur árum þegar allir vinningarnir gengu út. Þetta þýðir því miður að átta félagsmenn Einingar-Iðju gætu verið að missa af því að fá vinning upp á kr. 15.000. Það getur borgað sig að taka þátt!

Eining-Iðja óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar þeim fjölmörgu sem gáfu sér tíma til að taka þátt.