Á síðasta fundi aðalstjórnar félagsins fór m.a. fram umræða um orlofshús og gæludýr. Stjórnin ákvað að fara af stað með tilraunaverkefni og leyfa til prufu gæludýr í orlofshúsi félagsins í Húsafelli frá og með næstu áramótum.
Lausaganga gæludýra er stranglega bönnuð á svæðinu og algjörlega nauðsynlegt er að hirða upp eftir dýrin.
Ef upp kemst um lausagöngu og ef umgengni er slæm má viðkomandi félagsmaður eiga von á að fá sekt eða bókunarbann í orlofshúsum félagsins.
Göngum vel um húsin okkar, við eigum þau öll!
Hér má finna leiðbeiningar fyrir helstu aðgerðir inni á nýjum Mínum síðum félagsins, m.a. hvernig á að bóka orlofseign.