Fyrsti fundur SGS og LÍV

Á myndinni sem tekin var við þetta tækifæri eru frá vinstri:
Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Ve…
Á myndinni sem tekin var við þetta tækifæri eru frá vinstri:
Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs – starfsgreinafélags
Eiður Stefánsson, formaður FVSA og formaður samninganefndar LÍV
Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður LÍV og VR
Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS og Verkalýðsfélags Akraness

Eins og fram kom í frétt hér á vefnum sl. þriðjudag þá ákváðu stærstu landssambönd launafólks á vinnumarkaði, Landssamband íslenzkra verzlunarmanna og Starfsgreinsamband Íslands, að taka höndum saman í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning.

Forystufólk úr þessum samböndum hittist í gær, fimmtudaginn 27. október 2022, í húsnæði VR til þess að stilla saman strengi og ákveða næstu skref. Mjög góður andi var í hópnum á þessum fyrsta fundi en þetta samstarf nær til hátt í 90 þúsund einstaklinga sem starfa á almennum vinnumarkaði innan tuttugu stéttarfélaga.

Ríkur vilji er innan beggja sambanda að gera sameiginlega atlögu að nýjum kjarasamningi þar sem áherslan verður á að auka kaupmátt og tryggja stöðugleika í efnahagslífinu.

Í framhaldi af fundinum fór fram fyrsti samingafundur þessara aðila við Samtök Atvinnulífsins.