Búið að FRESTA fundinum á Grenivík í dag

Fundurinn á Grenivík átti að vera á veitingastaðnum Kontórinn og hefjast kl. 17:00 en búið er að FRE…
Fundurinn á Grenivík átti að vera á veitingastaðnum Kontórinn og hefjast kl. 17:00 en búið er að FRESTA fundinum.

Þar sem í gildi verður appelsínugul veðurviðvörun frá kl. 16:00 í dag og veðurstofan búin að gefa út að ekkert ferðaveður verði á meðan viðvaranir eru í gildi er búið að fresta fundi félagsins sem fram átti að fara í dag á Grenivík.

Fundurinn verður haldinn mánudaginn 10. febrúar kl. 17:00 á veitingastaðnum Kontórnum.

Eining-Iðja hélt tvo fundi í síðustu viku á félagssvæðinu og einn í þessari viku þar sem m.a. fer fram kosning á svæðisfulltrúum félagsins og varamönnum þeirra. Svæðisfulltrúar sitja í aðalstjórn félagsins fyrir hönd síns svæðis og eru varamenn sjálfkjörnir í trúnaðarráð félagsins.

Í dag verður fundur kl. 17:00 á Grenivík. Í síðustu viku fóru fram fundir í Fjallabyggð  og á Dalvík.

Félagar, fjölmennum!

  • Miðvikudagur 5. febrúar 2025
    • Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 17:00 

Dagskrá

  1. Kosning á svæðisfulltrúa og varamanni.
  2. Kynning á Gallup könnun félagsins.
  3. Önnur mál.