Fundir með trúnaðarmönnum félagsins

Ákveðið var að kalla saman alla trúnaðarmenn félagsins, í nokkrum hópum, til að fara t.d. yfir starfsemi félagsins, starf trúnaðarmannsins og ýmislegt annað.

Búið er að skipuleggja átta fundi á Akureyri, einn á Dalvík og einn í Fjallabyggð. Verið er að skoða með tímasetningu á fundi á Grenivík.

Fundirnir á Dalvík og í Fjallabyggð verða á morgun, fimmtudaginn 12. október, og fundirnir á Akureyri verða 17. og 18. október nk.