Eining-Iðja mun halda þrjá almenna fundi á félagssvæðinu í lok janúar og byrjun febrúar 2025 þar sem m.a. mun fara fram kosning á svæðisfulltrúum félagsins og varamönnum þeirra. Tveir fundir verða í næstu viku, á Dalvík og í Fjallabyggð og svo verður fundur á Grenivík í byrjun febrúar.
Svæðisfulltrúar sitja í aðalstjórn félagsins fyrir hönd síns svæðis og eru varamenn sjálfkjörnir í trúnaðarráð félagsins.
Félagar, fjölmennum!
Dagskrá