Fundað á Grenivík og á Akureyri í gær

Í gær hélt félagið síðustu tvo kynningarfundina á nýjum samningi á milli SGS og SA. Í gær var fundað á Grenivík og á Akureyri, en búið var að halda fundi í Hrísey, Dalvík og í Fjallabyggð. Mæting á fundina var misgóð en þó urðu góðar umræður um samninginn. Á fundunum kynnti Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, nýjan kjarasamning milli SGS og SA sem skrifað var undir þann 21. desember sl.

Hér má finna glærur sem Björn notaði á kynningarfundunum og hér má finna kynningarbækling sem sendur var á alla félagsmenn sem starfa á almenna markaðinum.